Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Áramótin.

Áramótin eru að koma kæru Gilsbakkarar.  Vildi bara minna ykkur á hvar þíð eigið að versla flugeldanna náttúrlega hjá ykkar björgunarsveit nú ef þið hafið enga hafið bara samband við vertinn ykkar eins og ég er kallaður stundum hér á blogginu. Og ég get vísað ykkur á næsta markað og svo getið þið líka farið inn á   flugeldar.is þar ættu þið að finna það sem ykkur vantar. Svo veit ég náttúrlega  að þið getið bjargað ykkur án þess að fá ráð hjá mér en með kveðju héðan úr Lækjarbrekku frá ritstjóranum.

Gleðileg jól

Gleiðleg jól


Mynd vikunnar

Í eldhúsinu á Gilsbakka

Þarna var enn hægt að fá líters kók í gleri og Sinalco. Líklega tekið fyrir rúmum 20 árum. Ef einhver getur áttað sig á hvað þessi mynd er gömul væri gaman að fá comment um það.


Poppað í örbylgjuofni

Hæ hér er kreppuráð nímer eitt.

Gler skál með loki.

smjörlíki

popmais

Setja smjörlíki í skálina og bræða smjörlíkið í örbylgjuofni og er smjörlíkið er bráðnað er maís settur í skálin og ofninn settur á 5 mínútur.  Er 2 til 3 sek eru á milli að maísinn springur er allt tekið út og saltað eftir smekk og borðað.  Passið ykkur á að skálinn hitnar mikið og ég þarf að nota rafsuðuhanska til að geta tekið hana úr ofninum.  Með kreppu kveðju Jói ritstjóri.


Afmæli í dag

Jenny er 38 ára í dag.

  afmæli

 

Ritstjórn Gilsbakkafrétta óska henni til hamingju með daginn


Mynd vikunnar

scan0008

Hver er með Lilla á myndinni ?


Búið að skíra yngsta Gilsbakkarann

Þá er búið að skíra yngsta Gilsbakkarann og var honum gefið nafnið Hreiðar Örn, en hann var skírður í dag í Lágafellskirkju af Séra Jakobi Ágússyni, fv. Dómkirkjupresti. Baldur Örn fékk að segja nafnið og var þetta falleg lítil afhöfn. Gilsbakkafréttir óska honum og fjölskyldunni til hamingju með daginn.

Heimild: http://2ernir.blog.is/blog/2ernir/


Afmæli í dag

Christopher Jakob er 2 ára í dag.

 afmæli

 

Ritstjórn Gilsbakkafrétta óska honum til hamingju með daginn


Mynd vikunnar

Þröstur og Óli

Tveir ungir drengir í stofunni á Gilsbakka


Nýjasti Gilsbakkarinn !

Nýjasti Gilsbakkarinn er kominn heim og heilsast Örnu og GullErninum vel.

Búið er að setja inn nokkrar myndir á bloggsíðuna hjá þeim bræðrum (2ernir) en okkur fannst viðeigandi að láta eina fylgja hérna með.

GullÖrninn

Kær kveðja, Arna & Jói Baldur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband