Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Kjartan Jakob 19 ára.

Elsku frændi.

Innilega til hamingju með daginn í dag. Smakkaðist hangikjötið ekki velWink

Bestu kveðjur í Árbakkabæinn.

Kveðjur Sigrún og co


Kvöldmaturinn í kvöld í Brunevang 92

Mér lýst mjög vel á kjúklinginn hér á undan en versta er hvað það þarf mörg hráefni.

Í kvöld hjá okkur Val verður pizza með ruccola salati.

Uppskrift:

Pizzabotn

2 1/2 bolli hveiti
1 msk þurrger
1 tsk salt
 ½ tsk sykur - við höfum notað eina teskeið af hunangi í staðinn
 1 bolli vatn (vatn velgt og þurrgerinu bætt út í)
 1 msk matarolia

Álegg
pizzasósa
 1 fersk mozzarella kúla skorin í sneiðar (eða camenbert eða annar góður ostur)
 1 bréf parmaskinka (eða annarskonar hráskinka)
 1 bakki ruccola salatsalt

Aðferð
Pizzabotnin hrærður saman og geymdur inn í ískáp í klukkutíma til einn og hálfan.
Sósan sett á botninn, mozzarella sneiðunum dreift yfir og þetta bakað í ofni í 10-15 mínútur.
Þegar pizzan er tekin úr ofninum er skinkunni dreift yfir, salatinu yfir það og að lokum sett salt yfir allt.

Mjög einfalt og fljótlegt að gera :)

Verði ykkur að góðu
Guðrún og Valur

pizza

 


Uppskrift frá Víetnam

Sælir Gilsbakkarar!

 

Fannst kominn tími á að setja inn eina uppskrift, og fannst mér tilvalið að setja inn mataruppskrift frá Víetnam, þar sem að matur þaðan er í miklu uppáhaldi hjá mér.

 

Samantekt:  Kjúklingurinn er látinn liggja í kryddlegi og síðan wok-steiktur ásamt grænmeti.

 

 

LemonGrass Kjúlli frá Víetnam

 

 

Kjöt:

600 beinlaust, skinnlaust kjúklingakjöt, lundir eða læri, skorið í bita

 

Kryddlögur:

2 stilkar af lemongrass

2 skalottulaukar

1 rauður chili, fræhreinsaður

4 hvítlauksgeirar

4 sm engiferrót

1/2 dl olía

1/2 dl vatn

salt og pipar

 

Grænmeti:

1 búnt vorlaukur

1 rauður chili, fræhreinsaður

1 laukur

Ø  Saxið laukinn, vorlaukinn og chilibelginn

 

Wok-sósa:

2 msk sojasósa

1 msk hrísgrjónaedik

1/2 msk fiskisósa

1 tsk sykur

1 tsk maizena

Ø  Blandið öllu vel saman í skál

 

Maukið allt sem að á að fara í kryddlöginn saman í matvinnsluvél. Setjið kryddlöginn í stóran ziplock-plastpoka(eða poka sem að hægt er að loka) ásamt kjúklingabitunum og veltið vel saman. Marinerið í nokkrar klukkustundir, helst yfir nótt

Þegar kjötið er tilbúið byrjum við á því að undirbúa það sem þarf fyrir steikinguna, grænmetið og wok-sósu.

 

Þá er komið að því að elda grænmetið og kjúklinginn.

Hitið olíu á wok-pönnu eða stórri pönnu. Steikið grænmetið þar til það er orðið mjúkt. Takið af pönnunni og geymið. Takið kjúklinginn úr kryddleginum og hristið mesta maukið af. Bætið olíu á pönnuna og steikið á mjög heitri pönnunni. Þegar kjúklingabitarnir hafa tekið á sig góðan lit og eru að verða steiktir í gegn bætið þið Wok sósunni út á og steikið áfram í 1-2 mínútur. Bætið þá grænmetinu út á og steikið þar til það er orðið heitt.


Berið fram með jasmín-grjónum (eða öðrum góðum hrísgrjónum).

 

                                    Jói Ritstjóri                       

thưởng thức (verði ykkur að góðu)


Afmæli Gilsbakkara í Janúar 2011

Afmæli_Januar

Afmæli Gilsbakkara!

Ég er svo ánægð með afmæliskveðjurnar sem hafa verið birtar hér reglulega og vil sérstaklega þakka þeim sem sjá um það. Um leið langar mig að koma með þá uppástungu að á næsta ári þá verði sett inn í staðinn ein færsla í mánuði þar sem öll afmælisbörnin eru sett inn í einu - hvernig líst ykkur á það?

Við verðum svo endilega að vera duglegri að setja inn uppskriftir(sem ég sakna) myndir mánaðarins(sem ég sakna) og t.d. brandara eða sögur af ættingjum......langar t.d. núna til að fá óbrigðult ráð til að brúna kartöflur - án þess að þær verði að "brenndum karamellum með kartöflufyllingu!!!!!"

Endilega að tjá sig :)

kv.Ása 


Gleðilega hátíð

Hátíð 2010
 
Ritstjórn Gilsbakkarafrétta óskar Gilsbökkurum og öðrum, nær og fjær, til sjávar eða sveita gleðilegrar hátíðar, með þökkum fyrir árið sem að er að líða
 
Ritstjórn

Afmæli í dag

Jenny er 40 ára í dag.

afmæli  

 

Ritstjórn Gilsbakkafrétta óska henni til hamingju með daginn


Frostrósir

Sælir ættingjar

Ætla að misnota vefsíðuna aðeins en vinnufélagi minn er með til sölu 6 stk miða á Frostrósa tónleikana á Akureyri í kvöld 16.12. Ef einhver hefur áhuga þá hafið samband við hann en kappin heitir Gunnar Ægir og er með síma 858 9230.

Kveðja frá Hvammstanga / Gunnar Örn


Afmæli í dag

Christopher Jakob er 4 ára í dag.

afmæli  

 

Ritstjórn Gilsbakkafrétta óska honum til hamingju með daginn


Afmæli í dag

Sigrún er 56 ára í dag.

afmæli  

 

Ritstjórn Gilsbakkafrétta óska henni til hamingju með daginn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband