Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Tilkynning frá ritstjórn!
9.10.2010 | 20:57
Ritstjórn Gilsbakkafrétta vill biðja yngismærina Ingibjörgu og háskólanemann Ingimar, þeirra fjölskyldu og Gilsbakkara til sjávar og sveita, innilegrar afsökunar á því að ritstjóranum er var á helgarvaktinni misfórst að setja inn afmæliskveðju systkynanna á Árbakka.
Ritstjórn mun í vikunni hittast og fara yfir málefni ritstjórans, og ferla við að setja inn afmæliskveðjur og annað tengt síðu Gilsbakkaranna, þannig að svona mistök endurtaki sig ekki!
Ingimar & Ingibjörg
Innilega til hamingju með afmælin ykkar!
Ritstjórn
Afmæli í dag
9.10.2010 | 20:50
Afmæli í dag
9.10.2010 | 20:49
Ísostakaka :-)
6.10.2010 | 18:09
Mundi eftir þessari þegar Ása bað um uppskrift.
1 poki makrónukökur
175 gr smjör brætt.
Myljið kökurnar og setjið í botn á meðalstóru smelluformi. Hellið smjörinu yfir og þéttið vel.
Fylling:
300 gr rjómaostur
200 gr. rjómaostur
1/2 L þeyttur rjómi.
Þeytið rjómaost og flórsykur saman. Bl. þeyttum rjóma saman við. Setjið ofan á botninn í smelluforminu jafnið og látið í frysti. Fyllingin á að frjósa alveg í gegn áður en lengra er haldið.
Krem: 1 dós sýrður rjómi blandað saman við brætt súkkulaðið.
2oo gr. súkkulaði
Ber til skreytingar.
Kakan losuð úr forminu með því að hita formið . Kremið sett á frosna kökuna, skreytt með berjum og sett í frysti fram að neyslu tekin út 30 mín fyrir neyslu.
Gestgjafinn 11 tbl.2003.
Verði ykkur að góðu. Kveðja Sigrún
Fædd er prinsessa!
28.9.2010 | 09:50
Ritstjórn Gilsbakkarafrétta óskar þeim innilega til hamingju með litlu prinsessuna
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Smá fréttir frá Köben
25.9.2010 | 21:10
Takk kærlega fyrir afmæliskveðjurnar um daginn :)
Langar bara að koma með smá fréttir frá Kaupmannahöfn. Við erum nú loksins búin að koma okkur mjög vel fyrir í okkar eigin íbúð. Fyrstu vikurnar vorum við á smá flakki milli vinar hans Vals, gistiheimila, hostela og Þýskalands. En 14. sept fengum við íbúð, litla hálf stúdíó íbúð (45fm) í Rödovre. Það er úthverfi frá Köben en við erum sirka 20 mín með lest niður í miðbæ.
Skólinn okkar er bara mjög fínn en hann er frekar langt frá, sirka 13 km frá þar sem við búum núna. Við tökum strætó uppeftir og erum sirka hálftíma til klukkutíma á leiðinni (eftir hvernig við hittum á) svo það þarf að vakna snemma hér til þess að mæta í skólann kl 8.
Svo fylgja hér nokkrar myndir:
http://public.fotki.com/valurb/bin-okkar/
Hilsen
Guðrún og Valur
Afmæli í dag
19.9.2010 | 09:52