Gilsbakkarinn sem er ekki á Fésinu :)
4.2.2010 | 14:22
Góðan daginn kæru ættmenn og viðhengi.
Bara svona að láta vita af okkur hér fyrir austan - allt í góðu hjá okkur enn næg vinna -álverið spúir eldi og reyk eða þannig.
Er bara að minna á flöskusjóðinn í gríni en líka alvöru.
Þori ekki að tjá mig meira í bili - vona að allir hafi það sem best.
Kærleikskveðjur Sigrún og fj.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Hæ en æðisleg að fólk noti þennan miðil eithvað maður þirfti bara að vera duglegri að skrifa inn á hann en gott mál að minna á flöskusjóðinn. Er til einhver reikningur sem maður getur lagt inn á. bið jum að heilsa öllum og hún Anna Sigrún veks og dafnar.
Lækjarbrekka (IP-tala skráð) 4.2.2010 kl. 16:45
Gott að sjá að eitthvað líf er enn í síðu Gilsbakkaranna. Ég er tildæmis orðin ansi langeygð eftir "Mynd vikunnar", sem ekki hefur birst í margar vikur. Og líka væri gaman að sjá uppskriftir eða eitthvað skemmtilegt! Litla Strúna var hér í pössun í dag, alltaf svo flott klædd. Hún lætur sko heyra í sér þegar hún er svöng. Hafið það alltaf sem allra best og farið nú að láta heyra frá ykkur!!!!!!!!!!!
hraunkotskerlingin (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 20:27
Já alveg er ég smmála henni mágkonu minni með mynd vikunnar - hvernig er með ,,karlinn sem er með öll myndaalbúmin''
Kveja Sigrún
Sigrún (IP-tala skráð) 7.2.2010 kl. 20:40
Ég heimta að hann skili albúmunum, ef hann er hættur að birta myndir!!!!!!!!!! Og hana nú Gunnar Örn
hraunkotskerlingin (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 18:35
Sigrún mín við virðumst bara þær einu sem skrifa hér, þessvegna nota ég aðstöðuna og læt hér með vita að það er dvd diskur á leiðinni frá mér og nöfnu þinni. Hefur væntanlega farið í póst í dag! En myndin er nú ekki 120 mínútur þó það standi á hulstrinu! kveðja Lilla
hraunkotskerlingin (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 18:49
Sælar mamma og frænka
ég skal setja inn eins uppskif.
mamma ertu með hugmyndir ?
kv Arna
Arna (IP-tala skráð) 11.2.2010 kl. 14:29
fékk einhvern tíman svaka góðan kartöflurétt með Caj P grillsósu og góðan kjörtétt með hjá þér
hraunkotskerlingin (IP-tala skráð) 11.2.2010 kl. 18:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.