Búið að skíra yngsta Gilsbakkarann
14.12.2008 | 20:22
Þá er búið að skíra yngsta Gilsbakkarann og var honum gefið nafnið Hreiðar Örn, en hann var skírður í dag í Lágafellskirkju af Séra Jakobi Ágússyni, fv. Dómkirkjupresti. Baldur Örn fékk að segja nafnið og var þetta falleg lítil afhöfn. Gilsbakkafréttir óska honum og fjölskyldunni til hamingju með daginn.
Heimild: http://2ernir.blog.is/blog/2ernir/
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:34 | Facebook
Athugasemdir
Kæra fjölskylda innilega til hamingju með daginn og litli kútur til hamingju með nafnið þitt megi guð og gæfan fylgja ykkur öllum um ókomin ár. Bestu kveðjur héðan að austan
Sigrún (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 21:59
hæ ört stækkandi fjölskylda til hamingju með nafnið a litla prinsinum eg var ekki buin að sja þetta þegar eg skrifaði a jolakortin bara svo þið vitið það annars allt gott að fretta ur Vallartununu sorry en kommutakkinn er bilaður. Eru samt ekki allir farnir að hlakka til jolanna? Kv. Sigga og co
Gilsbakkararnir, 16.12.2008 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.