Poppað í örbylgjuofni

Hæ hér er kreppuráð nímer eitt.

Gler skál með loki.

smjörlíki

popmais

Setja smjörlíki í skálina og bræða smjörlíkið í örbylgjuofni og er smjörlíkið er bráðnað er maís settur í skálin og ofninn settur á 5 mínútur.  Er 2 til 3 sek eru á milli að maísinn springur er allt tekið út og saltað eftir smekk og borðað.  Passið ykkur á að skálinn hitnar mikið og ég þarf að nota rafsuðuhanska til að geta tekið hana úr ofninum.  Með kreppu kveðju Jói ritstjóri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Kátt er á Jólunum koma þau senn. Þá munu upp rísa Gilsbakkamenn. Er það ykkar Gilsbakki? Gilsbakki í Borgarfirði?  Þangað rek ég mínar ættir.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.12.2008 kl. 18:11

2 identicon

Nei, þessi Gilsbakki er í Eyjafjarðarsveit.  En það eru samt allir kátir á jólunum þar - líka.  Og örugglega eru þessir Gilsbakkarar skyldir þér, þó það sé kannske fjarskylt.

Hraunkotskerlingin (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 20:54

3 identicon

Rafsuðuhanzkar ! er það standard búnaður í eldhúsinu í Lækjarbrekku ?. Kemur þá upp í hugann "fondue" veizlan í Kálfsskinni um árið. Þá veitti ekki af rafsuðuhönzkum. 

Stóri bróðir Jóa (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 08:21

4 identicon

Þar sem stóri brói er að setja inn athugasemdir við eldhúsverk litla bróa , dettur mér í hug þegar hann slökkti á kertum á ættarmóti!! Jói minn, notarðu ekki örugglega rafsuðuhjálm þegar þú poppar?

Stóra systir Jóa (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 10:45

5 identicon

Æji, verið ekki að stríða englabarninu.  Þetta var allt saman "alveg óvart", líka þegar hann rak gaffalinn inn i rafmagnsinnstunguna á jólunum og sló öllu út.  Það var líka "óvart"!

mamma " englabarnsins" (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband