Með ritstíflu!
27.1.2009 | 22:54
Ætlaði að skrifa eitthvað ægilega merkilegt hér - eitthvað um hvort allir þeir sem ekki áttu 990 númer séu ekki búnir að taka frá númar fyrir sig á bílana......... sem við vonandi eigum öll næsta sumar!!
........svo ætlaði ég að skrifa eitthvað ægilega merkilegt um fésbókarana - en nokkrir gilsbakkaranna eru þar og erum við rosalega mikið að tala saman, setja inn skemmtileg komment um hvert annað, hlæjum og höfum það rosalega gaman - tölu/ skrifum líka mikið um ykkur - þ.e. ykkur sem eruð ekki memm á fésbókinni og getið ekki lesið það sem við skrifum
......en svo er ég eitthvað svo ægilega andlaus vegna þess að ég hélt að það væri að koma vor - en svo fór að snjóa!! Gísli skilur ekki hvað mér er illa við snjóinn vegna þess að ég er frá AKUREYRI!!! ....en ég sé svo sem ekki að honum sé eitthvað sérstaklega vel við rigninguna og er hann nú úr KÓPAVOGI!!
......er að hugsa um að "deleta" þessu rugli ekki - heldur vista það og sjá til hvort ég fái ekki einhverjar merkilegar athugasemdir .......
Kveðja
Ása
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Smá athugasemd frá lúðanum sem er ekki á < facebook> þó svo ég hafi litið þetta fyrirbæri augum , hef mjög takmarkaðan áhuga í því sem þar fer fram og ef ég er í rosa mikilli þörf að tjá mig þá er til tæki sem heitir sími og ég nota það þá bara, kveðja frá lúðanum sem býr fyrir austan
Sigrún (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 12:52
Já, mín kæra frænka, mikið vildi ég vera duglegri við að nota símann. En hugsaðu þér hvað það er gaman að fá að vita að hann "Sjonni, gamli bekkjarbróðir þinn úr barnaskóla" ætlar að hafa ýsu í kvöldmatinn
.......hann Sjonni hringir ekki í þig til að segja þér það 
Við HEYRUMST - kveðja Ása
Ása (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 19:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.