Óskað eftir aðilum í ritstjórn

Kæru Gilsbakkarar!

 

Ég hef ákveðið að stíga til hliðar og hleypa öðrum að í ritstjórn Gilsbakkarafrétta.

 

Áhugasamir setji inn umsóknir í athugasemdakerfið.

 

Kv, Jói Baldur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæri tengdasonur, ég trúi þessu ekki uppá þig.  Skora á þig að yfirgefa  ekki Gilsbakkarana, en  halda áfram utan um þessa síðu.  Vonandi verða fleiri til að skora á þig til áframhaldandi setu í ritstjórninni. 

                                                      kveðja frá tengdamútter.

p.s. Gegndu strákur!

TENGDAMAMMA (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 23:04

2 identicon

Kæri Jói.Eg tek heilshugar undir með tengdamömmu þinni,það var ekki og verður ekki til siðs að segja af sér.Ég skora á þig.

Þröstur Jóhannesson (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 12:23

3 identicon

Ég tek heilshugar undir með mömmu og Lilla -EKKi segja af þér, þú hefur staðið þig óaðfinnanlega með þessa síðu og hún yrði ekki söm ef þú hættir. Það eru svo margir sem kíkja inn - án þess að skilja eftir komment, vonandi skilja þeir eftir áskorun á þig um að halda áfram.

P.s. gengdu nú tengdamömmu þinni, þú ert nú einu sinni uppáhalds tengdasonur hennar.......í þínum aldursflokki

Ása (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 13:32

4 identicon

Kæri Jói,ég skora á þig að vera áfram ritstjóri. Þú hefur staðið þig með miklum sóma og ert Gilsbökkurum til fyrirmyndar.Ég kíki oft inn á síðuna,en eins og Lilja sagði"mamma þú ert alltaf inn á Gilsbakkararnir".Styð þig eindregið áfram.

Kveðja úr Vallengi.

Kristbjörg L. Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 16:47

5 Smámynd: Gilsbakkararnir

Kæri Jói.  Ég tek undir með þeim sem hafa skorað á þig að halda áfram sem ritstjóri, það er alveg nóg af stjórnleysi í kringum okkur og af því við eigum nú sameiginlegan son þá vona ég að þú hugsir þinn gang. Kveðjur til ykkar allra og læt fljóta hér með að Þröstur er að koma í land og systir hans  að sækja hann á Nes.

Sigrún

Gilsbakkararnir, 21.3.2009 kl. 23:38

6 identicon

Afsagnarbeiðni er hér með hafnað, þú ert búin að standa þig svo vel með síðuna. Svo annað, það þarf að setja LÖG til að þú getir hætt og ekki kem ég með að styðja það. Með bestu kveðju frá Hvammstanga / GÖJ

Gunnar Örn (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 23:47

7 identicon

Kæri tengdasonur, þú hlýtur að gegna okkur þetta eru svo eindregin meðmæli, sem þú færð fyrir ritstjórnarhæfileika.  Þú GETUR BARA EKKI HÆTT!!! kveðja frá uppáhalds tengdamömmu þinni.

p.s. og ef þú gegnir ekki, færðu aldrei framar að leika á ættarmótinu!!!!!!!

tengdamamma (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 14:29

8 Smámynd: Jóhannes Baldur Guðmundsson

Ég þakka fyrir falleg orð í minn garð.

Hef ákveðið eftir að hafa legið lengi undir feldi að:

  • semja lag um höfnun, og vona ég að Gunni samþykki að ég flytji það á næsta ættarmóti. 
  • Sækjast eftir sameiginlegu forræði við Sigrúni
  • Hlýða tengdamömmu minni!
Legg svo til að kosið verði í ritstjórn á næsta ættarmóti!

Jóhannes Baldur Guðmundsson, 23.3.2009 kl. 23:12

9 identicon

Hlakka til að heyra lagið um höfnun á næsta móti. Mbk. GÖJ

Gunnar Örn (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 08:12

10 Smámynd: Gilsbakkararnir

Það er gott að þér snérist hugur. það þarf alltaf að vera einn svoooonnna í hverri ætt.

Kv Sigga

Gilsbakkararnir, 24.3.2009 kl. 14:04

11 identicon

Húrra kæri tengdasonur minn, þú  færð örugglega að flytja brag á næsta ættarmóti, getur farið í mál við Sigrúnu um forræðið og hjá prestfrúnni á Eskifirði, en það er ekki víst að það verði tími fyrir ritstjórnarkosningar, ef dagskráin er þétt!!!!!!!!!!!!!!!!!

Tengdamútter (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband