Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Afmæli í dag

Jón Heiðar er 20 ára í dag.

 afmæli

 

Ritstjórn Gilsbakkafrétta óska honum til hamingju með daginn

 


Skafti á afmæli í dag!

Til hamingju með afmælið gamli! Ertu ekki rétt rúmlega fertugur?

 

Við óskum þér og þinni frú innilega til hamingju með 3 ára

brúðkaupsafmælið ykkar sem er þann 5. nóvember.

HeartHeartHeartHeart

Kveðja frá Gíslabalafrúnni og Hraunkotskerlingunni

 


Mynd 3

Mynd 3

Hér er mynd nr 3, kemur aðeins fyrr þar sem ein af þeim sem eru að skoða þetta var farin að bíða óþreyjufull eftir næstu mynd. Kv. GÖJ 


Mynd vikunnar nr 2

Gilsb nr 2

 

 

 

 

 

 

 

Hér er mynd vikunnar nr 2, líklega tekin einhverntíman á milli 1960 til 1970. Kannski getur einhver fróður komið með nákvæmari tímasetningu.

Með því að klikka á myndina þá er hægt að stækka hana til að skoða í smáatriðum.

Kv. GÖJ


Afmæli í dag!

Jón Ragnar er 8 ára í dag.

 afmæli

 

Ritstjórn Gilsbakkafrétta óska honum til hamingju með daginn

 


Smá andlitslyfting....

 

Gerði "smá" andlitsbreytingu á síðunni okkar.

Bætti einnig inn "hvenær fæddust þau" hér til hægri.

 

                                                                                              Kv, Jói RITstjóri


Mynd vikunnar

Gilsb 2 

Á dálítið af myndum tengdum fjölskyldunni og datt í hug að reyna að koma með eina í hverri viku. Og ef þið hafið einhverjar góðar og gamlar þá  endilega senda þær á gunnarja@simnet.is

M.kv. frá Hvammstanga / GÖJ


22 okt eru bara 286 dagar.

Já það eru bara 286 dagar til næsta hittings á hrauninu , vildi bara minna á það svo fólk geti farið að spá í skemmtiatriði og fleiri uppá komur.  Ég tók mér það leifi að fá tjaldið leigt aftur,  náði fínum samning að mér finst. Að vissu með aðeins meiri vinnu, Þeir ætla að láta mig tjalda því svo núna vantar mér sjálfboða liða til að hjálpa mér.  Því þetta er um klukkutíma verk.  Ef einhver hefur tíma væri gott að fá að vita það fljótlega með kveðju ein af ritstjóronum.  P:S  á efttir að fá samþykki hjá nefndar mönnum svo þetta er allt sett upp með von um að þau samþykki þetta.

Dabbi Kóngur!

 
Dabbi Kóngur

Frá einum af ritstjórum þessa miðils.

Sælt verið fólkið vildi bara láta vita að ég er búinn að stifta um síma félag er að reyna að bjarga Björgúlfi, því mér skilst að hann sé ein aðal eigandi Nova.  Svo er ég bara svo hrifinn af Nova man eftir Novunni hans Pabba og ferðalögum í henni.  Annars er allt gott að frétta hjá mér núna eru um 500 gæsir og nokkrir svanir verst að ég má ekki skjóta þá.  Vantar byssuleifið, verð bara að fara að reda því svo maður geti sofið á morgnana. En annað er ekki að frétta af mér og mínum bless í billi. AAAAAA jú eitt veit ekki Sigga systir Pabba af þessari síðu.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband