Ostasalat

Hér kemur uppskriftin af ostasalatinu.

1 Mexikóostur

1 hvítlauksostur

1 dós sýrður rjómi

1 lítil dós majónes

1 græn paprika

1 rauð paprika

blaðlaukur

blá vínber eftir smekk

Osturinn skorinn í teninga, grænmetið saxað og öllu blandað saman.

Borið fram með góðu brauði eða kexi.

Svo læt ég fylgja uppskrift af bollunum frá Diddu okkar í Fróðasundi, þær klikka aldrei.

Kínabollur

1 kg. nautahakk

1 pakki ritskex mulið

1 bréf púrrulaukssúpa

2 egg krydd eftir smekk

Allt hnoðað saman í skál búnar til litlar bollur og steiktar allar hringinn upp úr olíu.

Súrsæt sósa

1 flaska chilisósa

1 krukka rifsberjahlaup

Hitað saman í potti hellt yfir bollurnar og hitað í ofni við 150 gráður í 20 mín

 

Svo skora ég á hraunkotsfrúna og hennar ekta maka, hef heyrt að þau eldi dýrindis fiskisúpu sem væri gaman að fá uppskrift af. Bestu kveðjur Kristbjörg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gilsbakkararnir

Hæ, gleymdi, það á að vera lítil dós ananas mínus safi í ostasalatinu.

Kveðja Kristbjörg

Gilsbakkararnir, 27.3.2009 kl. 22:54

2 Smámynd: Jóhannes Baldur Guðmundsson

OMG .. hvað þetta gladdi sælkeragenið mitt!

Takk kærlega Kristbjörg!

Jóhannes Baldur Guðmundsson, 27.3.2009 kl. 23:01

3 identicon

Þar kom vel á vondan.  Hafin er dauðaleit að fiskisúpuuppskriftinni !

Hraunkotskerlingin (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband