Kjúklingabringur

Ég ætla að koma með uppskrift af einföldum kjúklingabringum.

 

Kjúklingabringur

Ein krukka ORA pestó (rautt)

Rjómi

Einn piparostur

 

Kjúklingarbringur léttsteiktar á pönnu og kryddaðar með kjúklingakryddi.

Settar í eldfast mót og pestó dreift yfir hverja bringu, næst er smá rjóma hellt yfir bringurnar og botnfylli í fatið.

Eldað í ofni við 180° í sirka 20-30 mín eftir stærð. Ég geri ráð fyrir einni bringu á mann.

Með þessu geri ég piparostasósu, bræði piparost og rjóma í potti og hef hrísgrjón og hvítlauksbrauð með.

 

Mjög fljótlegur réttur og einstaklega ljúffengur :)

Ég vil skora á Gunnar Örn og fjölskyldu að koma með næstu uppskrift.

 

Kveðja Guðrún Helga (og Valur Oddgeir)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er lifandi og er til í að prófa þessa uppskrift hjá ykkur, er þægileg fyrir mig tekur greinnilega ekki lángan tíma. Takk.  Lækjarbrekkuliðið.

P.S konan mín er kominn heim af sjukrahúsinu.

Jóhannes (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 17:35

2 Smámynd: Ernirnir í Dalatanga 4

Með fullri viðingu fyrir Gunna mági mínum, þá mæli ég (og stóri sælkeramaginn minn) að uppskriftin komi frá unnustu hans.

Ég get svo sannarlega mælt með öllum mat sem hún Jenný gerir, en bílinn okkar eyðir yfirleitt 2-3 lítrum meira á hundraði eftir að ég (og co) renni við hjá Gunna og Jenný og fáum stórveitingar með kaffinu hjá þeim.

Ernirnir í Dalatanga 4, 6.4.2009 kl. 22:49

3 identicon

Þetta er spennandi uppskrift og ætla að prófa hana. Og að sjálfsögðu tek ég áskoruninni. Mbk. GÖJ

GÖJ (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband